Þekkingarsetur Suðurnesja var í glæsilegum hópi þeirra sem hlutu styrk frá Menningarráði Suðurnesja í ár. Setrið hlaut 1.200.000 kr. í styrk. Nánar má lesa um styrkhafa hér.

Sumaropnun sýninga
Frá og með næstu helgi verða sýningar Þekkingarsetursins opnar alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17.
Á virkum dögum er opið hjá okkur frá kl. 10-16.
Við hvetjum alla til að koma og skoða sýningarnar sem eru áhugaverðar og skemmtilegar fyrir alla fjölskylduna.

Vel heppnað námskeið í kræklingatínslu
Þriðjudagskvöldið 23. apríl var haldið námskeið í kræklingatínslu hjá Þekkingarsetrinu. Námskeiðið var vel sótt og vakti mikla ánægju meðal viðstaddra. Dr. Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum, fjallaði um kræklinginn og líffræði hans en athyglin beindist þó sérstaklega að því sem hafa þarf í huga þegar hann er tíndur til matar. 


