Reykjanes jarðvangur stendur fyrir sinni fyrstu jarðvangsviku 10. – 20. maí. Í tilefni af henni mun Þekkingarsetrið standa fyrir léttri fræðslugöngu um nágrenni Garðskagavita mánudaginn 13. maí. Fjallað verður um lífríki fjörunnar, fuglalífið og sögu svæðisins.
Gangan hefst við Garðskagavita kl. 20:00 og hvetjum við alla, börn og fullorðna, til að fjölmenna.
Nánar má lesa um jarðvangsvikuna hér.



Þekkingarsetur Suðurnesja var í glæsilegum hópi þeirra sem hlutu styrk frá Menningarráði Suðurnesja í ár. Setrið hlaut 1.200.000 kr. í styrk. Nánar má lesa um styrkhafa 
Frá og með næstu helgi verða sýningar Þekkingarsetursins opnar alla laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17.