Þriðjudagskvöldið 23. apríl var haldið námskeið í kræklingatínslu hjá Þekkingarsetrinu. Námskeiðið var vel sótt og vakti mikla ánægju meðal viðstaddra. Dr. Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum, fjallaði um kræklinginn og líffræði hans en athyglin beindist þó sérstaklega að því sem hafa þarf í huga þegar hann er tíndur til matar. 

Styttist í næsta námskeið
Námskeiðið Fuglaskoðun – Hvar, hvenær og hvernig? verður haldið í Þekkingarsetrinu næsta þriðjudag, 16. apríl, kl. 20.
Hvetjum alla til að mæta – ókeypis aðgangur.
Vélstjórnarnemendur í heimsókn
Fimmtudaginn 4. apríl komu góðir gestir í heimsókn til okkar í Þekkingarsetrið. Þar voru á ferð nemendur í vélstjórn við Fjölbrautaskóla Suðurnesja ásamt tveimur kennurum. Þeir fengu kynningu á starfseminni í húsinu og þá sérstaklega rannsóknum á áhrifum mengunar í hafinu.


