Þekkingarsetrið mælir með árlegri kræklingaferð HÍ á morgun

Á morgun, laugardaginn 18. apríl kl. 10, mun Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Suðurnesjum, einnar stoðstofnanna Þekkingarsetursins, ásamt Gísla Má Gíslasyni, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, leiða áhugasama um kræklingafjöru í Hvalfirði og kokka upp veitingar í fjörunni.

Hist verður í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 10 á laugardag þar sem boðið verður upp á stutta fræðslustund. Í framhaldinu verður ekið í halarófu á einkabílum upp í Hvalfjörð þar sem kræklingi verður safnað.  Áætlað er að ferðin taki um þrjár klukkustundir.

Ferðin er farin í samstarfi við Ferðafélag barnanna sem er undirfélag Ferðafélags Íslands og því er tilvalið fyrir alla fjölskylduna að skella sér  í Hvalfjörðinn.

Nánar upplýsingar um viðburðinn má finna hér.

 

Ársfundur Rannsóknarsetra Háskóla Íslands á Húsavík

Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands var haldinn á Húsavík í síðustu viku. Um sjötíu manns sóttu fundinn. Á fundinum voru m.a. kynntar rannsóknir sem unnar eru við rannsóknasetur HÍ víðsvegar um landið. Soffía Karen Magnúsdóttir, meistaranemi við Rannsóknasetur HÍ á Suðurnesjum sem er önnur stoðstofnana Þekkingarsetursins, kynnti þar rannsókn sína á mögulegu eldi á evrópska humrinum á Íslandi, sem fer nú fram hér í Sandgerði.

IMG_3689

Heimkynni evrópska humarsins eru í hlýjum sjó Miðjarðarhafsins, Svartahafsins og við Atlantshafsstrendur Frakklands, Bretlands og Spánar. Því er hann ræktaður í upphituðum sjó hér í rannsóknaraðstöðu Þekkingarsetursins. Við kjöraðstæður getur evrópski humarinn orðið allt að sextíu sentímetrar að lengd og sex kílóa þungur og þykir hinn ljúffengasti veisluréttur.

IMG_3511 Soffía Karen Magnúsdóttir, meistaranemi

Það er Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra fyrirtækisins Svinna-Verkfræði ehf, sem hefur umsjón með rannsókninni en hún er gerð í samvinnu við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum og Þekkingarsetur Suðurnesja, auk tveggja erlendra fyrirtækja.

mynd_halldór

Evrópski humarinn (Mynd: Halldór Pálmar Halldórsson)

Roðsútunarnámskeið um helgina

Það var mikið unnið í Þekkingarsetrinu um helgina þegar þessi hressi hópur fólks mætti á roðsútunarnámskeið með Lene Zachariassen. Lene kenndi náttúrulegar aðferðir við roðsútun m.a. með álún og berki. Það er óhætt að segja að þáttakendur hafi farið glaðir og margs vísari heim á sunnudaginn eftir skemmtilegt helgarnámskeið, með fallega unnin roð í farteskinu.

Við hjá Þekkingarsetrinu þökkum Lene og öllum þátttakendum námskeiðsins kærlega fyrir yndislega helgi.

2015-04-10 18.50.43

Börkurinn brotinn niður

2015-04-10 19.20.22

Mismunandi sútunaraðferðir ræddar

2015-04-10 19.53.10

Roðin hengd upp eftir barkarbað og  innfitun

2015-04-10 19.52.48

Mismunandi roð sem hægt er að lita í regnbogans litum