Þekkingarsetrið í Sjónvarpi Víkurfrétta

Nýjasta sýning Þekkingarsetursins, Huldir heimar hafsins – Ljós þangálfanna, fær skemmtilega umfjöllun í Sjónvarpi Víkurfrétta, sem sýndur er á tveggja tíma fresti á ÍNN í dag.

opnun1

Við hjá Þekkingarsetrinu hvetjum alla til að horfa á þáttinn og að sjálfsögðu að koma til okkar í Sandgerði og líta sýninguna augum. Þáttinn um þangálfanna má nálgast hér.

Þekkingarsetrið á ÍNN í kvöld

Þekkingarsetrið mælir eindregið með því að horfa á þáttinn Suðurnesjamagasín á ÍNN í kvöld þar sem m.a. verður fjallað um nýju listasýninguna okkar Huldir heimar hafsins – Ljós þangálfanna.

Minnum einnig á opnunartíma sýninga Þekkingarsetursins sem eru opnar frá kl. 10:00-14:00 á virkum dögum. Fyrsta helgaropnun sumarsins verður laugardaginn 2. maí kl. 13:00.

Opnunartími Þekkingarsetursins um páskana

Sýningar Þekkingarsetursins verða lokaðar á skírdag, föstudaginn langa og annan í páskum, opnum aftur þriðjudaginn 7. apríl kl. 10:00.

ungar

Í vetur eru sýningar Þekkingarsetursins annars opnar frá kl. 10:00-14:00 á virkum dögum. Fyrsta helgaropnun sumarsins verður laugardaginn 2. maí.

Við óskum ykkur gleðilegra páska.

Kveðja frá starfsfólki Þekkingarseturs Suðurnesja.