Heimsókn 3. bekkjar Sandgerðisskóla

3. bekkur Sandgerðisskóla kom í dag í Þekkingarsetrið með kuðunga og skeljar sem þau fundu í Sandgerðisfjöru. Þau suðu, hreinsuðu og flokkuðu kuðunganna sem svo verða notaðir í listaverk. Krakkarnir fengu fræðslu um nákuðunga, klettadoppur og þangdoppur og svo var farið í þangálfaleit.
2015-04-29 09.07.17

 

2015-04-29 09.53.59
2015-04-29 09.54.17

Heimsóknin er hluti af samstarfsverkefni Sandgerðisbæjar með finnska sveitarfélaginu Mänttä-Vilppula, sem er styrkt af Comenius Regio hluta Menntaáætlunar ESB. Markmið verkefnisins er að tengja betur saman skóla og stofnanir sveitarfélaganna með sérstaka áherslu á náttúrufræði og listir. Grunnskólinn og leikskólinn í Sandgerði, Rannsóknasetur Hí á Suðurnesjum, Náttúrustofa Suðvesturlands og Listatorg eru þátttakendur í verkefninu auk Þekkingarsetursins.

2015-04-29 08.58.07

2015-04-29 09.11.09

 

Starfskynning fyrir grunnskólanemendur á Suðurnesjum

Líf- og umhverfisfræðingar Þekkingarsetursins og Náttúrustofu Suðvesturland tóku þátt í mjög vel heppnaðri starfskynningu sem Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar, ásamt náms- og starfsráðgjöfum, stóðu fyrir í gær.

Starfskynningin er liður í átaksverkefni til eflingar menntunar á Suðurnesjum og þar fá nemendur í 9. og 10. bekk á Suðurnesjum  tækifæri til þess að fræðast um hina ýmsu starfsvettvanga með því að ganga á milli bása og spyrja spurninga.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum voru krakkarnir mjög áhugasöm um störf líf- og umhverfisfræðinganna.

2015-04-21 09.08.16

2015-04-21 09.16.31

2015-04-21 10.10.41

2015-04-21 10.37.32