Jarðvangsvika – Upplestur grunnskólabarna

Þekkingarsetrið vill þakka Kolbrúnu, Halldóri og Skúla, nemendum í 7. bekk Sandgerðisskóla fyrir notalega stund í gær þegar þau lásu upp úr  upp úr bók Selmu Hrannar Maríudóttur, Glingló, Dabbi og Rex – Rassaköst á Reykjanesi.

2015-05-27 17.09.44

Það var afar góðmennt og auk upplestursins gafst gestum einnig tækifæri til að fylgjast með veiðum fuglafræðinga sem þessa dagana stunda rannsóknir hér í Sandgerði.

 

2015-05-27 17.17.28

Krabbarnir í búrunum vekja alltaf hrifningu yngstu gesta Þekkingarsetursins

Jarðvangsvika í Þekkingarsetrinu

Þekkingarsetrið verður með tvo viðburði í tilefni jarðvangsviku Reykjanes jarðvangs sem haldin verður í þriðja sinn dagana 25.-30. maí.

Miðvikudaginn 27. maí kl. 17:00 munu börn úr 7. bekk Sandgerðisskóla lesa upp úr bók Selmu Hrannar Maríudóttur, Rassaköst á Reykjanesi.

Föstudaginn 29. maí kl. 17:00 verður kveikt upp í þaragrillinu og gestum boðið upp á grillaðan krækling og fleira góðgæti úr fjörunni.

dagskrá jarðvangsviku 2015

Sumarið komið í Þekkingarsetrinu

2015-05-08 11.11.37

Sumarið er svo sannarlega komið í Þekkingarsetrið og vorferðis skóla og leikskóla í fullum gangi. Í vikunni hefur mikill fjöldi barna komið í heimsókn til okkar, farið í fjöruferðir, veiðiferð í Sandgerðistjörn, skoðað krabba, þangálfa og fleiri skemmtilegar verur.

2015-03-26 10.06.41

Krabbarnir í búrunum vekja alltaf mikla lukku

2015-05-08 11.43.32

Hér má sjá vísindamenn framtíðarinnar skoða tjarnarlífverur

2015-04-29 09.11.09

Þetta eru ekki þangálfarnir?