Ársfundur Stofnunar rannsóknasetra HÍ í Þekkingarsetrinu

IMG_4672Mikið var um að vera í Þekkingarsetri Suðurnesja síðastliðinn föstudag þegar ársfundur Stofnunar rannsóknasetra Hí var haldinn þar. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, setti fundinn sem um 50 manns sóttu. Áhugaverð erindi voru flutt og að þeim loknum undirrituðu Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Rögnvaldur Ólafsson forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ og Kristín Ingólfsdóttir rektor, samning um Rannsóknasetur HÍ.

IMG_4723Rögnvaldi voru afhent blóm frá starfsfólki á Garðveginum að fundi loknum en hann mun láta af störfum í lok árs, eftir meira en 40 ára starf við Háskóla Íslands.

Ófrýnilegur gestur í Þekkingarsetrinu!

Farm köngulóOkkur barst þessi glæsilega og sprelllifandi Farm könguló í morgun. Hún fannst á vörulager Pennans á Ásbrú og hefur borist til landsins með vörusendingu.

Farm köngulær bíta með eitri en það er ekki skaðlegt fólki. Næsti viðkomustaður þessarar er Náttúrufræðistofnun Íslands þar sem hún verður rannsökuð og skráð sem 13. eintakið sem berst af tegundinni hingað til lands.