Námskeiðið Tínum söl var fært um viku og verður haldið laugardaginn 27. júlí.
Mæting er við styttuna af Geirfuglinum við Valahnjúk á Reykjanesi kl. 13:00. Þátttakendur þurfa að vera í vatnsheldum skóm, helst stígvélum, og hafa með sér lekan poka til að safna í, til dæmis strigapoka.
Enn er hægt að skrá sig á námskeiðið með því að senda okkur póst.


Í sumar býður Þekkingarsetrið upp á skemmtilegan og spennandi ratleik sem hentar fyrir bæði börn og fullorðna. Ferðast er vítt og breitt um nágrenni setursins í Sandgerði og það eina sem þarf að hafa meðferðis er ökutæki og myndavél.