Uppákoma á laugardögum í sumar

KolkrabbiÁ laugardögum í sumar verður sjávardýrunum í Þekkingarsetrinu gefið að borða kl 15:00. Þá er oft mikill hamagangur sem gaman er að fylgjast með. Við hvetjum því alla til að kíkja við.

Every Saturday this summer we will feed our sea creatures at the Sudurnes Science and Learning Center at three o´clock. It is always fun to watch so we hope you visit us.

Lokað á 17. júní

Sýningar Þekkingarsetursins verða lokaðar mánudaginn 17. júní.
Þær eru annars opnar alla virka daga frá kl. 10-16 og um helgar frá kl. 13-17 í sumar.

Heimsóknir grunnskólanemenda

Skólahópar vor 2013Mikið fjör hefur verið hérna hjá okkur í Þekkingarsetrinu síðustu vikur því yfir 1.000 nemendur úr leik- og grunnskólum hafa heimsótt okkur í maí og júní. Krakkarnir voru á öllum aldri, sumir héðan af Suðurnesjum en aðrir af höfuðborgarsvæðinu.

Skólahópar vor 2013_2Flestir skólanna fóru með nemendur í fjöruferð sem gengu vel, þrátt fyrir leiðinlegt veður oft á tíðum, og nemendur komu klyfjaðir tilbaka af ýmsum furðudýrum úr fjörunni.

Skólahópar vor 2013_6Nemendur fá að borða nestið sitt um borð í skipi Jean-Baptiste Charcot sem líkt er eftir á sýningunni Heimskautin heilla. Sumir hóparnir grilluðu líka pylsur fyrir utan.Skólahópar vor 2013_7

Það er margt að sjá í Þekkingarsetrinu og vekja lifandi sjávardýrin alltaf mikla athygli. Ef að krakkarnir finna einhver dýr á lífi í fjörunni fá þeir að bæta þeim í búrin.Skólahópar vor 2013_4

Við þökkum öllum þeim nemendum og kennurum sem heimsóttu okkur kærlega fyrir komuna, vonum að þið hafið haft bæði gagn og gaman að!Skólahópar vor 2013_5