Þekkingarsetrið aðili að Comeniusar verkefni

IMG_0555Þekkingarsetrið tekur nú þátt í samstarfsverkefni sem Sandgerðisbær hlaut Comenius Regio styrk til að vinna. Verkefnið er til tveggja ára og hófst í október með heimsókn átta Finna hingað, en finnska sveitarfélagið Mänttä-Vilppula er samstarfsaðili í verkefninu.

Vinnufundir voru haldnir í grunnskólanum.
Vinnufundir voru haldnir í grunnskólanum.

Verkefnið kallast Development of curricula and teacher training og snýr að þróun námskráa, kennsluefnis og þjálfunar fyrir kennara í náttúrufræðum og listgreinum. Markmið verkefnisins er að tengja saman skóla og hinar ýmsu stofnanir og fyrirtæki bæjarfélaganna á þessum sviðum.
Finnsku gestirnir fengu allir viðurkenningarskjal fyrir að hafa gengið á milli heimsálfa og vakti það mikla lukku.
Finnsku gestirnir fengu allir viðurkenningarskjal fyrir að hafa gengið á milli heimsálfa og vakti það mikla lukku.

Boðið var til kvöldverðar í Þekkingarsetrinu.
Boðið var til kvöldverðar í Þekkingarsetrinu.
Listakonurnar Ásta og Eija
Listakonurnar Ásta og Eija

Vísindakaffi og Vísindavaka Rannís

P1000074Rannsóknasetur HÍ á Suðurnesjum og Þekkingarsetrið tóku þátt í Vísindavöku Rannís sem haldin var föstudaginn 27. september.
1631
Daginn áður var Vísindakaffi haldið í Þekkingarsetrinu við mikla ánægju gesta. Þar var fjallað um rannsóknir á grjótkrabba og krækling auk þess sem gestir fengu að smakka á kræsingunum.
1635
Fleiri myndir frá viðburðunum má sjá hérna.

Fiskflökun í Þekkingarsetrinu

IMG_1768
Námskeið í handflökun fisks var haldið af Þekkingarsetrinu og MSS í samstarfi við fleiri aðila. Leiðbeinendur námskeiðsins voru vanir handflakarar frá Fiskverkun K&G, Fiskverkun Ásbergs – Nesfiskur lánuðu okkur aðstöðu og Stofnfiskur aðstoðaði við að útvega fisk til flökunar.
IMG_1759
Þátttakendur fengu kennslu í handflökun á laxi, ýsu og kola og sýndu þeir góð handtök eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
IMG_1762
Skráning stendur yfir á komandi námskeið Þekkingarsetursins. Nánar má lesa um þau hér.
IMG_1757