Minnum á námsaðstöðuna í Þekkingarsetrinu

Nú er bara mánuður í að prófatíð hefjist í háskólum landsins!
Við minnum á að háskólanemar sem búsettir eru á Suðurnesjum geta nýtt sér aðstöðu Þekkingarsetursins til að læra á öllum tímum sólarhringsins. Hafið endilega samband í síma: 423-7555 eða sendið okkur póst ef þið viljið frekari upplýsingar.

Exam time at the universities is almost upon us!
University students living in the Sudurnes region can use the facilities at Sudurnes Science and Learning Center to study, any time day or night. Please email us or call (+354) 423-7555 if you want to know more. studying-watercolor1

Alþingismenn Suðurkjördæmis í heimsókn

P1000120
Miðvikudaginn 23. október fengum við í Þekkingarsetrinu sérstaklega góða gesti í heimsókn þegar alþingismenn Suðurkjördæmis voru á ferðinni. Sjö þeirra koma héðan af Suðurnesjum og þar af einn ráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
P1000123
Alþingismennirnir fengu kynningu á starfsemi setursins og skoðunarferð um rannsóknaaðstöðuna okkar og sýningar en nú stendur meðal annars yfir rannsókn á vegum Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum á bleikju og laxi.

Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknasetur HÍ á Suðurnesjum, sýnir gestunum grjótkrabba.
Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknasetur HÍ á Suðurnesjum, sýnir gestunum grjótkrabba.

Þingmennirnir létu vel af heimsókninni og við þökkum þeim kærlega fyrir komuna. Fleiri myndir má sjá hérna.
Sigríður Guðmundsdóttir hjá  Fisksjúkdómadeildinni að Keldum sagði frá rannsókn sinni.
Sigríður Guðmundsdóttir hjá Fisksjúkdómadeildinni að Keldum sagði frá rannsókn sinni.

Hjátrú og draumar í Þekkingarsetrinu

P1000108Skemmtilegt og áhugavert erindi var flutt í Þekkingarsetrinu í gær. Símon Jón Jóhannsson, þjóðfræðingur, fjallaði um hjátrú og drauma sem tengjast hinum ýmsu fyrirbærum náttúrunnar. Símon hefur gefið út margar bækur um bæði hjátrú og draumráðningar.
P1000116

Vissuð þið til dæmis að ef sængin manns er fyllt eingöngu af rjúpnafiðri þá getur maður ekki dáið? Og að ef köttur situr með aðra afturlöppina beint upp í loftið þá er von á gestum?

Erindið var vel sótt og vakti lukku meðal þátttakenda.
P1000113

Næsta námskeið Þekkingarsetursins í samstarfi við MSS verður miðvikudaginn 6. nóvember en þá mun Stebbi á Vitanum fara yfir grunnatriðin í matreiðslu sjávarfangs. Skráning stendur yfir hér og athugið að fjöldatakmörkun er á námskeiðið.