Upplýsingar um opnunartíma sýninga

Sýningar Þekkingarsetursins verða lokaðar eftirtalda daga:

Fimmtudaginn 29. maí – Uppstigningardagur
Mánudaginn 9. júní – Annar í hvítasunnu
Þriðjudaginn 17. júní – Lýðveldisdagurinn

Í sumar verður annars opið frá kl. 10-16 á virkum dögum og frá kl. 13-17 um helgar.

Our exhibitions will be closed on the following days:

Thursday May 29th
Monday June 9th
Tuesday June 17th

The exhibitions are otherwise open on weekdays from 10:00 to 16:00 and on weekends from 13:00 to 17:00.

Þátttaka Þekkingarsetursins í Comeniusar verkefni

Fyrir miðri mynd eru verkefnisstjórar verkefnisins, Taina Peltonen og Guðjón Kristjánsson.
Fyrir miðri mynd eru verkefnisstjórar verkefnisins, Taina Peltonen og Guðjón Kristjánsson.

Þekkingarsetur Suðurnesja er aðili að samstarfsverkefni Sandgerðisbæjar með finnska sveitarfélaginu Mänttä-Vilppula, en verkefnið er styrkt af Comenius Regio hluta Menntaáætlunar ESB. Markmið verkefnisins er að tengja betur saman skóla og stofnanir sveitarfélaganna með sérstaka áherslu á náttúrufræði og listir. Grunnskólinn og leikskólinn í Sandgerði, Rannsóknasetur Hí á Suðurnesjum, Náttúrustofa Suðvesturlands og Listatorg eru þátttakendur í verkefninu auk Þekkingarsetursins.
Hátíðarhöld vegna 1. maí eru skýring grímubúninganna í þessum grunnskóla sem við heimsóttum.
Hátíðarhöld vegna 1. maí eru skýring grímubúninganna í þessum grunnskóla sem við heimsóttum.

Í lok apríl sl. var annar fundur verkefnisins haldinn og fóru þá fulltrúar stofnananna hér í bænum í heimsókn til Finnlands. Ferðin gekk mjög vel og voru vinnufundir árangursríkir. Við heimsóttum bæði grunn- og leikskóla, listasafn og nokkur gallerý. Hópnum var einnig boðið í íslenska sendiráðið í Helsinki og til bæjarstjóra sveitarfélagsins Mänttä-Vilppula. Verkefnið er til tveggja ára og lýkur sumarið 2015. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir úr ferðinni.
Bæjarstjóri Mänttä-Vilppula ásamt Guðjóni Kristjánssyni  frá Sandgerðisbæ.
Bæjarstjóri Mänttä-Vilppula ásamt Guðjóni Kristjánssyni frá Sandgerðisbæ.

Líffræðinemendur í Þekkingarsetrinu um helgina

Líf og fjör var í Þekkingarsetrinu um helgina. Til viðbótar við aðra helgaropnun sumarsins dvaldi hér hópur líffræðinemenda frá HÍ en heimsóknin er hluti af námi þeirra í fuglafræði.

P1000283

Á myndinni eru þau með kennaranum sínum, Dr. Gunnari Þór Hallgrímssyni, Bob Dusek vísindamanni frá National Wildlife Health Center í USA og þremur líffræðingum Þekkingarseturs og Náttúrustofu. Hópurinn var á leið í fuglaleiðangur út á Reykjanes þegar myndin var tekin.