Opið fyrir styrkumsóknir í INTERACT

Þekkingarsetrið er aðili að INTERACT samtökunum sem bjóða upp á styrki til rannsóknastarfa á yfir 40 rannsóknastöðvum sem aðild eiga að samtökunum. Opið er fyrir styrkumsóknir til 8. október næstkomandi og hvetjum við stofnanir og vísindamenn hér á landi til að kynna sér málið. Frekari upplýsingar má finna hérna:

INTERACT Transnational Access Call is open for projects taking place between April and August 2020

The EU-H2020 funded INTERACT (International Network for Terrestrial Research and Monitoring in the Arctic) opens a call for research groups to apply for Transnational Access to 42 research stations across the Arctic and northern alpine and forest areas in Europe, Russia and North-America. The sites represent a variety of glacier, mountain, tundra, boreal forest, peatland and freshwater ecosystems, providing opportunities for researchers from natural sciences to human dimension. Transnational Access includes free access (either physical or remote) for user groups/users to research facilities and field sites, including support for travel and logistic costs.

Overall, INTERACT provides three different modalities of access: Transnational and Remote Access that are applied through annual calls, and Virtual Access which means free access to data from stations, available at all times through the INTERACT VA single-entry point.

The call for Transnational and Remote Access applications is open on 12th August – 8th October 2019, and it is the final TA/RA call for our current EU-H2020 funding period. The call is targeted for access taking place between April and August 2020. You can find the TA/RA Call information, stations available in the call, descriptions of stations and their facilities, and registration to the INTERACCESS on-line application system from the INTERACT website.

For any additional information, please contact the Transnational Access coordinator Hannele Savela, hannele.savela(at)oulu.fi.
Apply INTERACT Transnational Access to conduct research at the coolest places of the North!

Skólahópar í Þekkingarsetrinu


Síðustu vikur hefur verið sérstaklega mikið líf og fjör í Þekkingarsetrinu en tæplega 1.200 nemendur leik- og grunnskóla af höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hafa heimsótt setrið í vorferðum sínum. Nánast allir hóparnir fengu blíðskaparveður sem gerði ferðirnar enn betri.

Krakkarnir byrjuðu á að fara í fjöruna á Garðskaga að leita að lífverum sem þeir komu með í Þekkingarsetrið til að skoða betur. Hér var svo farið í leiki og lesin saga um líf Jean-Baptiste Charcot.

Mikil ánægja var með heimsóknirnar og stóðu nemendurnir sig frábærlega! Við erum strax farin að hlakka til skólaheimsókna næsta árs.

Geopark vikan 2019

Geopark vika Reykjanes Geopark stendur yfir dagana 27. maí til 8. júní. Þekkingarsetrið er aðili að Reykjanes Geopark og stendur fyrir tveimur uppákomum í vikunni – Fugla og fjöruskoðun miðvikudaginn 5. júní og fjölskylduratleiknum Fjör í fjörunni laugardaginn 8. júní. Báðir viðburðir eru ókeypis og tilvaldir fyrir alla fjölskylduna.

Hér má lesa meira um dagskrá Jarðvangsvikunnar sem við hvetjum alla til að taka þátt í.