Þekkingarsetrið var einn af 25 heppnum styrkþegum þegar Landsbankinn veitti styrki úr samfélagssjóði sínum í síðustu viku. Við fengum 250.000 kr. styrk til rannsókna á vistfræði fjara á Reykjanesskaganum og færum Landsbankanum miklar þakkir fyrir.

Þekkingarsetrið býður háskólanemum á Suðurnesjum upp á ókeypis lestraraðstöðu fyrir próflesturinn. Strætó stoppar beint fyrir utan húsið!
Látið þetta endilega berast fyrir okkur.
Fulltrúar Þekkingarsetursins og Náttúrustofu Suðvesturlands, þau Sölvi Rúnar Vignisson og Sunna Björk Ragnarsdóttir, sóttu í vikunni lokafund alþjóðlegs nets rannsóknastöðva á norðlægum slóðum, INTERACT, sem haldinn var í Hvalsö í Danmörku. Þar fengu þau að kynnast starfsemi INTERACT sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að virku samstarfi stofnana með það að leiðarljósi að rannsaka, skilja og spá fyrir um þær breytingar sem eru að eiga sér stað á norðurslóðum.