Gleðileg jól

Þekkingarsetrið verður lokað á milli jóla og nýárs, opnum aftur föstudaginn 2. janúar kl. 8:00. Í vetur eru sýningar Þekkingarsetursins annars opnar frá kl. 10:00-14:00 á virkum dögum.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hafið það sem allra best yfir hátíðirnar.

Kveðja frá starfsfólki Þekkingarseturs Suðurnesja

gleðileg jól

Sudurnes Scienca and Learning Center´s exhibitions will be closed between Christmas and New Year. The Center will open again on Friday January 2nd.

The exhibitions are otherwise open on weekdays from 10:00 to 14:00 during the winter.

Sudurnes Scienca and Learning Center wishes everyone a very Merry Christmas and a Happy New Year.

Námskeiðadagskrá Þekkingarsetursins

Námskeiðadagskrá Þekkingarsetursins, í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, fyrir komandi vorönn hefur litið dagsins ljós og bjóðum við að þessu sinni upp á 3 spennandi námskeið sem lesa má um hér:

 

https://thekkingarsetur.is/thekkingarsetur-sudurnesja/fraedsla/namskeid/

 

Gjafabréf á námskeið Þekkingarsetursins er skemmtileg jólagjöf fyrir skapandi og fróðleiksfúst fólk á öllum aldri.

Þekkingarsetrið og Náttúrustofa Suðvesturlands í sýnatöku í Sandgerði

Síðasta sýnatakan í tveggja ára vöktunarverkefni fór fram í gær í kulda og fárviðri, þar sem þessar skemmtilegu myndir voru teknar.
IMG_2388
Líffræðingar Þekkingarsetursins og Náttúrustofu Suðvesturlands hafa undanfarin tvö ár tekið mánaðarleg sýni í grýttum fjörum og setfjörum við Sandgerði til þess að rannsaka árstíðabundinn breytileika í samfélagsgerð smádýra og fjölda lykillífvera í fjörum.
IMG_2369
Þessi rannsókn er algjört einsdæmi hér á landi og býr til undirstöðuþekking á árstíðabreytingum og eðli þeirra, sem er mikilvægur grunnur fyrir frekari rannsóknir á lífríki fjara. Þessi nýja þekking er m.a. mikilvæg fyrir fuglarannsóknir þar sem þekkt er að ákveðnar fuglategundir (t.d. tildra, sanderla, sendlingur og sandlóa) sækja í ákveðnar fjörur en enn er ekki nákvæmlega vitað hvað það er sem þær sækja í.
IMG_2391

IMG_2395