Eiturefnavistfræðinemar í verklegri kennslu í Þekkingarsetrinu

Hópur ​23 líffræðinema frá Háskóla Íslands kom til okkar í verklega kennslu í eiturefnavistfræði í vikunni.
P1000236
Það voru þeir Dr. Halldór Pálmar Halldórsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Suðurnesjum, sem sá að venju um kennsluna og Sölvi Rúnar Vignisson, líffræðingur hjá Þekkingarsetrinu, sem kynnti nemunum starfsemi setursins.

Þekkingarsetrið á Mannamóti Markaðsstofanna

2

Þekkingarsetrið tók þátt í Mannamóti markaðsstofanna sem haldið var í gær í Reykjavík. Mannamót er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og hér fengu landsbyggðarfyrirtæki tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á Höfuðborgarsvæðinu.

Þekkingarsetrið kynnti sýningarnar tvær sem í boði eru á Garðveginum auk þess sem fólk gat horft á kynningarmyndband um rannsóknaaðstöðu setursins og stoðstofnana þess.

1

 

 

Þekkingarsetrið hlaut styrk úr Vaxtarsamningi Suðurnesja

vaxtarsamningur_jan15

Þekkingarsetur Suðurnesja var í hópi þeirra sem hlutu styrk úr Vaxtarsamningi Suðurnesja, en þeim var úthlutað við hátíðlega athöfn þann 15. janúar. Verkefnið okkar kallast Fjörur á Reykjanesi – vannýtt auðlind í ferðaþjónustu og verður unnið í samstarfi við Náttúrustofu Suðvesturlands, Rannsóknasetur HÍ á Suðurnesjum, Reykjanes jarðvang, Markaðsstofu Reykjaness og Hópferðir Sævars Baldurssonar. Markmiðið með verkefninu er að kortleggja aðgengilegar fjörur á Reykjanesi með rannsóknir, nytjar og ferðaþjónustu í huga. Verkefninu var úthlutað einni milljón króna úr Vaxtarsamningnum og færum við úthlutunarnefnd kærar þakkir fyrir.

 
Hér má lesa um verkefnin fimmtán sem fengu styrk að þessu sinni.