Rjúpur koma sér fyrir í Grindavík

Mynd úr safni (Sölvi Rúnar Vignisson tók)

Undanfarin misseri hefur fuglalíf í Grindavík og nágrenni tekið stakkaskiptum. Fjölbreyttar tegundir sjást í mun meira mæli en áður og á fjölbreyttari stöðum. Í Sölvi Rúnar Vignisson, líf- og fuglafræðingur hjá Þekkingarsetri Suðurnesja var tekin tali á RÚV, þar sem hann ræðir ástæður sem liggja að baki þessari miklu breytingu en rjúpur hafa einnig sést í auknu mæli í nágrenni Þekkingarseturs Suðurnesja. Fréttina má lesa hér 

Sölvi Rúnar við störf sín

 

Frumkvöðlahraðall HÍ fyrir konur

Við vekjum athygli á því að opið sé fyrir umsóknir um frumkvöðlahraðalinn AWE – fyrir konur. Umsóknarfrestur er til 6. janúar nk.

Nánar má lesa um hraðalinn á vef HÍ, https://www.hi.is/frettir/taktu_thatt_i_awe_frumkvodlahradlinum_fyrir_konur

Lögð er rík áhersla á að konur alls staðar af landinu og með fjölbreyttan bakgrunn og uppruna taki þátt. Fyrirkomulag hraðalsins er því með þeim hætti að flestar vinnulotur eru á Teams en einnig verður staðlota á Hvanneyri og heimsókn í fyrirtæki undir forystu kvenna á Suðurnesjum. Við vekjum athygli á því að ferðastyrkir eru í boði fyrir konur af landsbyggðinni sem taka þátt

Hægt er að skrá sig til þátttöku á vef hraðalsins, https://awe.hi.is/ .

 

Lokafundur INTERACT haldinn á Skáni

Síðasti ársfundur INTERACT III Evrópuverkefnisins var haldinn á Skáni í Svíþjóð dagana 5. – 7. nóvember síðastliðinn og fóru fundahöld fram á Smyguhus Havsbad hótelinu við góðan róm gesta.

Fulltrúar um 60 rannsóknastöðva víðsvegar um Evrópu og Norður-Ameríku sóttu fundinn sem var bæði gagnlegur og skemmtilegur.
Hanna María Kristjánsdóttir, forstöðukona Þekkingarseturs Suðurnesja sótti fundinn fyrir hönd Þekkingarsetursins, sem hefur verið virkur hluti netverks rannsóknarstöðva INTERACT verkefnisins sem staðið hefur síðan árið 2011.

Nú við lok verkefnisins er ekki ljóst hvernig framhaldið verður, nema að því leyti að allir þátttakendur vonast til áframhaldandi samstarfs, enda tengsl þeirra á milli orðin sterk og gjöful.

INTERACT Non Profit Association hefur nú verið stofnað og munu þau samtök taka við öllu því góða starfi sem unnið hefur verið í gegnum INTERACT.

Nánar má kynna sér sögu og meginmarkmið INTERACT hér