
Árið fer vel af stað í Þekkingarsetri Suðurnesja en nú nýverið hlaut setrið styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja fyrir háskólaþjónustu Þekkingarseturs Suðurnesja. Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn í Hljómahöll í Reykjanesbæ þann 17. janúar sl.
Þekkingarsetrið hlaut alls 1,5 m.kr. til að koma verkefninu af stað en verkefnið og aðstaðan verður kynnt innan sem utan allra háskóla á Íslandi á komandi misserum. Þekkingarsetur Suðurnesja hefur til margra ára verið leiðandi í fræðslu til skólahópa á öllum skólastigum í verklegri sem og bóklegri kennslu á sviði náttúruvísinda.
Markmið Háskólaþjónustu Þekkingarseturs Suðurnesja er að auka áherslu á þjónustu við háskólanema á Suðurnesjum, bæði hvað varðar námsaðstöðu en einnig nýjar leiðir í vettvangsnámi sem háskólar landsins geta nýtt fyrir framhaldsnema í náttúrufræðum og tengdum greinum.
Við hlökkum til að bjóða upp á fjölbreytta og faglega þjónustu og hvetjum alla íbúa Suðurnesja, sem og aðra að kynna sér háskólanám sem í boði er á landinu. Af nægu er að taka.