
Líffræðiráðstefnan 2013 verður haldin 8. og 9. nóvember í Háskóla Íslands. Líffræðingarnir á rannsóknastöð Þekkingarsetursins, þau Íris, Sunna og Sölvi, eru á fullu í undirbúningi fyrir ráðstefnuna en þau taka þátt í veggspjaldasýningunni sem verður í Öskju. Þar munu þau kynna rannsóknarverkefni sitt – Árstíðabundinn breytileiki í fjöruvistum á Suðvesturlandi, en það er eitt af því sem þau vinna að í Þekkingarsetrinu.

Minnum á námsaðstöðuna í Þekkingarsetrinu
Nú er bara mánuður í að prófatíð hefjist í háskólum landsins!
Við minnum á að háskólanemar sem búsettir eru á Suðurnesjum geta nýtt sér aðstöðu Þekkingarsetursins til að læra á öllum tímum sólarhringsins. Hafið endilega samband í síma: 423-7555 eða sendið okkur póst ef þið viljið frekari upplýsingar.
Exam time at the universities is almost upon us!
University students living in the Sudurnes region can use the facilities at Sudurnes Science and Learning Center to study, any time day or night. Please email us or call (+354) 423-7555 if you want to know more. 
Alþingismenn Suðurkjördæmis í heimsókn

Miðvikudaginn 23. október fengum við í Þekkingarsetrinu sérstaklega góða gesti í heimsókn þegar alþingismenn Suðurkjördæmis voru á ferðinni. Sjö þeirra koma héðan af Suðurnesjum og þar af einn ráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Alþingismennirnir fengu kynningu á starfsemi setursins og skoðunarferð um rannsóknaaðstöðuna okkar og sýningar en nú stendur meðal annars yfir rannsókn á vegum Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum á bleikju og laxi.

Þingmennirnir létu vel af heimsókninni og við þökkum þeim kærlega fyrir komuna. Fleiri myndir má sjá hérna.


