Fulltrúar Þekkingarsetursins á fundi INTERACT í Danmörku

Fulltrúar Þekkingarsetursins og Náttúrustofu Suðvesturlands, þau Sölvi Rúnar Vignisson og Sunna Björk Ragnarsdóttir, sóttu í vikunni lokafund alþjóðlegs nets rannsóknastöðva á norðlægum slóðum, INTERACT, sem haldinn var í Hvalsö í Danmörku. Þar fengu þau að kynnast starfsemi INTERACT sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að virku samstarfi stofnana með það að leiðarljósi að rannsaka, skilja og spá fyrir um þær breytingar sem eru að eiga sér stað á norðurslóðum.

Lokafundur INTERACT í Danmörku

Þekkingarsetur Suðurnesja aðili að INTERACT

Þekkingarsetur Suðurnesja, ásamt stoðstofnunum þess Náttúrustofu Suðvesturlands og Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Suðurnesjum, varð á dögunum 71. aðili að INTERACT (International Network for Terrestrial Research and Monitoring in the Artic). INTERACT er alþjóðlegt net rannsóknastöðva á norðlægum slóðum sem fengið hefur fjármögnun úr rammaáætlunum Evrópusambandsins um rannsóknir og þróun. Meginhlutverk INTERACT er að byggja upp aðstöðu og þekkingu til að skilgreina og bregðast við umhverfisbreytingum á norðlægum slóðum.

Í aðild Þekkingarsetursins að INTERACT felast margskonar tækifæri fyrir starfsemi og rekstur setursins og stoðstofnana þess, auk samstarfsmöguleika við fjölmarga erlenda vísindamenn og rannsóknastofnanir á norðurslóðum.
Tvær aðrar íslenskar rannsóknastöðvar eru aðilar að INTERACT, Rannsóknastöðin að Litla-Skarði í Borgarfirði og Rannsóknastöðin Rif á Raufarhöfn.

Terry Callaghan, umsjónarmaður INTERACT, heimsótti Þekkingarsetrið á dögunum. (Mynd: Reynir Sveinsson).
Terry Callaghan, umsjónarmaður INTERACT, heimsótti Þekkingarsetrið á dögunum. (Mynd: Reynir Sveinsson).

Námskeið í silfur-sandsteypu með Þorgrími Kolbeinssyni 3. og 4. nóvember

Þekkingarsetur Suðurnesja mun í samvinnu við Þorgrím Kolbeinsson og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum halda námskeið í silfur-sandsteypu:

delftclay3

Sandsteypa er kjörin leið til að framleiða einfaldari gripi og hefur mannkynið notast við þessa aðferð frá bronsöld og hafa yfir 30 tonna styttur verið steyptar með þessari aðferð. Á námskeiðinu munu þáttakendur fá að hanna og smíða hálsmen í vax sem þeir síðan taka mót af í sérstökum sandi. Svo munum við bræða silfur og hella í mótin, hreinsa og fægja. Loks fá þáttakendur að taka menið með sér heim. Námskeiðið hentar öllum og ekki er þörf á sérstakri kunnáttu, bara mæta með góða skapið.

Námskeiðið er haldið dagana 3. og 4. nóvember frá kl. 19:30-21:30 í Þekkingarsetri Suðurnesja, Garðvegi 1, Sandgerði.

Kennari: Þorgrímur Kolbeinsson.

Verð: 8000 kr.

Innifalið: Allt efni, nema hálskeðjur hægt verður að kaupa sér.

Lágmarksfjöldi 5 manns. Hámarksfjöldi er 10 manns.

Skráning er hér