Þekkingarsetrið býður háskólanemum á Suðurnesjum upp á ókeypis lestraraðstöðu fyrir próflesturinn. Strætó stoppar beint fyrir utan húsið!
Látið þetta endilega berast fyrir okkur.
Þekkingarsetrið býður háskólanemum á Suðurnesjum upp á ókeypis lestraraðstöðu fyrir próflesturinn. Strætó stoppar beint fyrir utan húsið!
Látið þetta endilega berast fyrir okkur.
Fulltrúar Þekkingarsetursins og Náttúrustofu Suðvesturlands, þau Sölvi Rúnar Vignisson og Sunna Björk Ragnarsdóttir, sóttu í vikunni lokafund alþjóðlegs nets rannsóknastöðva á norðlægum slóðum, INTERACT, sem haldinn var í Hvalsö í Danmörku. Þar fengu þau að kynnast starfsemi INTERACT sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að virku samstarfi stofnana með það að leiðarljósi að rannsaka, skilja og spá fyrir um þær breytingar sem eru að eiga sér stað á norðurslóðum.

Þekkingarsetur Suðurnesja, ásamt stoðstofnunum þess Náttúrustofu Suðvesturlands og Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Suðurnesjum, varð á dögunum 71. aðili að INTERACT (International Network for Terrestrial Research and Monitoring in the Artic). INTERACT er alþjóðlegt net rannsóknastöðva á norðlægum slóðum sem fengið hefur fjármögnun úr rammaáætlunum Evrópusambandsins um rannsóknir og þróun. Meginhlutverk INTERACT er að byggja upp aðstöðu og þekkingu til að skilgreina og bregðast við umhverfisbreytingum á norðlægum slóðum.
Í aðild Þekkingarsetursins að INTERACT felast margskonar tækifæri fyrir starfsemi og rekstur setursins og stoðstofnana þess, auk samstarfsmöguleika við fjölmarga erlenda vísindamenn og rannsóknastofnanir á norðurslóðum.
Tvær aðrar íslenskar rannsóknastöðvar eru aðilar að INTERACT, Rannsóknastöðin að Litla-Skarði í Borgarfirði og Rannsóknastöðin Rif á Raufarhöfn.
