Stjórn Náttúrustofu Suðvesturlands, sem er ein stoðstofnana Þekkingarsetursins, auglýsir laust til umsóknar starfs forstöðumanns.

Stjórn Náttúrustofu Suðvesturlands, sem er ein stoðstofnana Þekkingarsetursins, auglýsir laust til umsóknar starfs forstöðumanns.

Í Þekkingarsetrinu er að finna einstaka sýningu um líf og starf franska heimskautafarans, leiðangurstjórans og læknisins Jean-Baptiste Charcot sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Charcot stýrði fjölmörgum vísindaleiðöngrum um norðurslóðir og suðurskautið á skipi sínu, Pourquoi Pas?, sem var sérútbúið rannsóknarskip. Í ferðum þess voru gerðar margvíslegar vísindarannsóknir sem þykja stórmerkar enn þann dag í dag.

Þann 16. september 1936 lenti Pourquoi pas? í miklu og óvæntu óveðri og fórst á Hnokka út af Álftanesi á Mýrum. Alls létust 40 manns, 23 fundust látnir, 17 var saknað og fundust aldrei, en einungis einn áhafnarmeðlimur komst lífs af.
í þessu myndbandi má sjá hvernig Pourquoi Pas? lítur út í dag, 79 árum síðar.
Þekkingarsetrið verður lokað á milli jóla og nýárs, opnum aftur föstudaginn 2. janúar kl. 8:00. Í vetur eru sýningar Þekkingarsetursins annars opnar frá kl. 10:00-14:00 á virkum dögum.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hafið það sem allra best yfir hátíðirnar.
Kveðja frá starfsfólki Þekkingarseturs Suðurnesja

Sudurnes Scienca and Learning Center´s exhibitions will be closed between Christmas and New Year. The Center will open again on Friday January 2nd.
The exhibitions are otherwise open on weekdays from 10:00 to 14:00 during the winter.
Sudurnes Scienca and Learning Center wishes everyone a very Merry Christmas and a Happy New Year.