Námskeið haustið 2016

gæra
Skráning á haustnámskeið Þekkingarsetursins er hafin á heimasíðu MSS.
Við bjóðum upp á tvö spennandi námskeið í september og október – gæsaflautun og skinnsútun. Hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst þar sem sætafjöldi er takmarkaður.

Frekari upplýsingar um námskeiðin má finna hérna.

Lokað um helgina

Sýningar Þekkingarsetursins verða lokaðar um helgina, 3. og 4. september, vegna Ljósanætur. Opnum aftur á mánudaginn kl. 10.

Our exhibitions will be closed this weekend, September 3ed and 4th. We open again on Monday at ten o´clock.

Ókeypis aðgangur um helgina

Krabbaskoðun á Sandgerðisdögum
Aðgangur verður ókeypis að sýningum Þekkingarsetursins nú um helgina í tilefni af Sandgerðisdögum. Opið verður hjá okkur frá kl. 13-17 laugardag og sunnudag.

Á laugardaginn verða líffræðingarnir með sjávardýr til sýnis á neðri hæðinni sem hægt verður að skoða í návígi og halda á.

P1000267
Sjávardýrunum sem eiga heima á efri hæðinni verður svo gefið að borða kl. 15.