Lokað á Ljósanótt

Sýningar Þekkingarsetursins verða lokaðar 7. og 8. september. Opnum aftur mánudaginn 9. september kl. 10:00.

The exhibitions at Sudurnes Science and Learning Center will be closed on September 7th and 8th. We open again next monday, September 9th at 10 O´clock.

Sandgerðisdagar í Þekkingarsetrinu

P1000024
Mikið var um að vera í Þekkingarsetrinu á Sandgerðisdögum. Laugardaginn 31. ágúst voru grillaðar pylsur í boði og lögðu ríflega 200 manns leið sína til okkar til að skoða sýningar og rannsóknaaðstöðu.

Ýmislegt forvitnilegt var til sýnis í rannsóknaaðstöðunni.
Ýmislegt forvitnilegt var til sýnis í rannsóknaaðstöðunni.
P1000034
Margir fróðleiksfúsir og hugaðir krakkar mættu, eins og myndirnar bera með sér. Fleiri myndir má skoða á Facebook síðunni okkar.
Krakkarnir fengu að gefa sjávardýrunum að borða.
Krakkarnir fengu að gefa sjávardýrunum að borða.

Málþingið Jarðfræði og fræðandi ferðaþjónusta

imagesMiðvikudaginn 28. ágúst næstkomandi stendur Þekkingarsetrið fyrir málþinginu Jarðfræði og fræðandi ferðaþjónusta í tilefni af heimsókn ástralskra sérfræðinga á sviði steingervinga, til okkar. Þátttaka er án endurgjalds og við hvetjum alla til að skrá sig hér.

Hér má sjá dagskrá málþingsins sem hefst kl. 10:00.