Kynningarmyndband Þekkingarsetursins komið út

Strákarnir hjá Optimus margmiðlun í Keflavík unnu nýverið glæsilegt kynningarmyndband fyrir Þekkingarsetrið. Þar sjást góð dæmi um það rannsóknastarf sem unnið er í setrinu, bæði hjá rannsóknastöð setursins, Rannsóknasetri HÍ á Suðurnesjum og Náttúrustofu Suðvesturlands.

Hér getið þið horft á myndbandið. Njótið!

Þekkingarsetrið á Mannamóti

IMG_0596
Þekkingarsetur Suðurnesja var einn níu aðila af Suðurnesjum sem tóku þátt í Mannamóti markaðsstofanna sem haldið var í gær í Reykjavík. Mannamót er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru í Reykjavík.

Þekkingarsetrið kynnti sýningarnar tvær sem í boði eru á Garðveginum auk þess sem fólk gat horft á nýja kynningarmyndbandið sem sýnir vel rannsóknaaðstöðu setursins og stoðstofnana þess.

Við minnum á að hópar geta heimsótt sýningarnar hvenær sem er skv. samkomulagi en annars er vetraropnunartíminn frá kl. 10-14 alla virka daga.

Gleðileg jól

jol2_2014
Þekkingarsetrið verður lokað á milli jóla og nýárs, opnum aftur fimmtudaginn 2. janúar kl. 8:00.

Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hafið það sem allra best yfir hátíðirnar.

Kveðja frá starfsfólki Þekkingarseturs Suðurnesja