Matarsóun og leiðir til að draga úr henni

Food-waste2
Langar þig að eyða minni peningum í matarinnkaup og á sama tíma stuðla að umhverfisvernd?

Þekkingarsetur Suðurnesja stendur fyrir spennandi fræðsluerindi, í boði Nettó, þar sem Rannveig Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Landvernd, mun fjalla um matarsóun. Matarsóun er stórt alþjóðlegt vandamál og fjallað verður um orsakir og afleiðingar hennar en líka hvað við sjálf getum gert til að draga úr matarsóun.

Hvenær: Fimmtudaginn 15. mars frá kl. 20:00 – 21:00
Hvar: Þekkingarsetri Suðurnesja, Garðvegi 1, Sandgerði

Þátttaka er ókeypis en áhugasamir eru beðnir um að skrá þátttöku hérna.

Nánari upplýsingar í síma 423-7555 eða í tölvupósti.

Lokun sýninga – Exhibitions closed

2015-03-26 10.06.41
Sýningar Þekkingarsetursins verða lokaðar alla næstu viku, frá 12. til og með 16. febrúar, vegna endurbóta. Við opnum aftur mánudaginn 19. febrúar kl. 10:00.

Our exhibitions will be closed due to renovations from February 12th until February 16th. We open again on February 19th at 10 o´clock.

Hvalreki á Hvalsnesi

Í gær gekk Guðmundur Falk, áhugaljósmyndari, fram á dauðan hval sem rekið hafði á land norðan af Hvalsnesi.

Hvalreki 1

Sölvi Rúnar Vignisson, líffræðingur hjá Þekkingarsetrinu fór á staðinn í roki og rigningu, greindi og mældi hvalinn og tók erfða- og fitusýni fyrir Hafrannsóknastofnun.

Hvalreki 5

Hvalurinn reyndist vera um 18 metra löng langreyð. Langreyður er næststærsta hvaltegundin og nærststærsta dýrategund heims. Fullvaxta dýr eru um 18-22 m og um 40-70 tonn á þyngd.

Hvalreki 4

Hvalreki 2

Hvalreki 3