
Síðustu vikur hefur verið sérstaklega mikið líf og fjör í Þekkingarsetrinu en tæplega 1.200 nemendur leik- og grunnskóla af höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum hafa heimsótt setrið í vorferðum sínum. Nánast allir hóparnir fengu blíðskaparveður sem gerði ferðirnar enn betri.

Krakkarnir byrjuðu á að fara í fjöruna á Garðskaga að leita að lífverum sem þeir komu með í Þekkingarsetrið til að skoða betur. Hér var svo farið í leiki og lesin saga um líf Jean-Baptiste Charcot.

Mikil ánægja var með heimsóknirnar og stóðu nemendurnir sig frábærlega! Við erum strax farin að hlakka til skólaheimsókna næsta árs.

Geopark vikan 2019
Geopark vika Reykjanes Geopark stendur yfir dagana 27. maí til 8. júní. Þekkingarsetrið er aðili að Reykjanes Geopark og stendur fyrir tveimur uppákomum í vikunni – Fugla og fjöruskoðun miðvikudaginn 5. júní og fjölskylduratleiknum Fjör í fjörunni laugardaginn 8. júní. Báðir viðburðir eru ókeypis og tilvaldir fyrir alla fjölskylduna.
Hér má lesa meira um dagskrá Jarðvangsvikunnar sem við hvetjum alla til að taka þátt í.
Sumaropnun sýninga
Nú um helgina hefst sumaropnun sýninga Þekkingarsetursins. Þær verða opnar frá kl. 13-17 á laugardögum og sunnudögum en frá kl. 10-16 á virkum dögum. Verið velkomin í heimsókn.
Our summer opening hours for the exhibitions start this weekend. They will be open on Saturdays and Sundays from 13-17 and on weekdays from 10-16. We look forward to see you.

