Þróun raungreinabúða á Reykjanesi

GeoCamp Iceland hefur síðustu ár unnið að þróun raungreinabúða á Reykjanesi í samstarfi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Keili og Þekkingarsetrið. Vorið 2020 hlaut Þekkingarsetrið fjármagn úr ríkissjóði, í gegnum samning við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, til að vinna að eflingu þekkingarstarfsemi á Suðurnesjum og þá sérstaklega eflingu menntunar og áhuga barna og ungmenna á sviði náttúruvísinda. Ákveðið var að nýta stóran hluta fjármagnsins til áframhaldandi þróunar raungreinabúða á Reykjanesi sem hefur nú staðið yfir í setrinu síðan í byrjun september 2020. Sumarið 2021 er stefnt að prufukeyrslu raungreinabúðanna fyrir lítinn hóp nemenda sem hafa lokið 9. bekk. Þá verður einnig boðið upp á sumarnámskeið fyrir náttúrufræðikennara í grunn- og framhaldsskólum í ágúst, í samstarfi við Keili. Námskeiðið er styrkt af SEF – Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara. Tveir háskólanemar verða við sumarstörf í setrinu til að koma að framkvæmd raungreinabúðanna. Nánari upplýsingar um báða viðburði verða aðgengilegar hér þegar nær dregur.

Mennta- og menningarmálaráðherra fundar með þekkingarsetrunum


Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra átti nýverið fund með fulltrúum þekkingarsetra. Um var að ræða ársfund Samtaka þekkingarsetra þar sem ráðherra var sérstakur gestur. Fundurinn var haldinn í fjarfundaformi með þátttöku allra þekkingarsetra innan samtakanna, sem eru sjö talsins. Lilja ávarpaði í upphafi fundar og ræddi m.a. um mikilvægi sterkra innviða fyrir menntaþjónustu og rannsóknir í byggðum landsins. Óli Halldórsson forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga, sá um almenna kynningu þekkingarsetranna fyrir hönd samtakanna en forstöðumenn hverrar stofnunar kynntu svo verkefni og áherslur hverrar stofnunar. Fundarmenn áttu svo gagnlegar samræður við ráðherra um málefni þekkingarsetranna, m.a. um framtíðarhlutverk þeirra sem innviðir menntakerfis byggða landsins og aukin tengsl við atvinnulífið og nýsköpunarstarf.