Nemendur

Nemendur sem nýta sér háskólaþjónustu Þekkingarseturs Suðurnesja stendur til boða skrifborðspláss í björtum og nýuppgerðum sal á neðri hæð Þekkingarsetursins.

Í rýminu er gott flæði starfsfólks, setu- og kaffistofa auk þess sem hægt er að nýta sér hópavinnu- og fundaherbergi en þar má finna fjarfundabúnað og alla helstu tækni til að tryggja öflugt hugarflug, hópavinnu eða fjarfund.

Nemendur sem leggja stund á nám í náttúru- og/eða menntavísindum hafa þá þann kost að nýta sér nærumhverfið og rannsóknarstofur innanhúss, bæði til úrvinnslu verkefna og einnig til vinnslu lokaverkefna.

Aðstaðan er í boði öllum þeim sem stunda háskólanám og búa á Suðurnesjum, óháð námsleiðum og eru öll velkomin.

Frumkvöðlum og aðilum í nýsköpun gefst einnig tækifæri á að sækja um aðstöðu í setrinu.

Hægt er að sækja um námsrými til lengri eða skemmri tíma þar sem Þekkingarsetrið býður einnig upp á gistimöguleika fyrir þá nemendur sem hér stunda nám eða vinna að rannsóknum.

SÆKJA UM