Háskólaþjónusta Þekkingarseturs Suðurnesja býður upp á einstaklega fjölbreytta aðstöðu til að taka á móti nemendahópum.
Nærumhverfið býður upp á mikil tækifæri til vettvangsnáms á sviðum náttúru- og menntavísinda auk þess sem rannsóknarstofur innanhúss bjóða upp á framúrskarandi aðstöðu til ýmissa rannsókna og tilrauna.
Kennurum stendur til boða kennslurými á efri og neðri hæð hússins og er hægt að sækja um að halda vinnustofur, verklegar kennslustundir, málþing, ráðstefnur og ýmislegt fleira.
Aðstaðan er í boði óháð námsleiðum og eru öll velkomin.

Gistiaðstaða Þekkingarsetursins opnar þá ýmsa möguleika til alþjóðlegs samstarfs og verkefna en hana er að finna á efri hæð hússins.


