
Þekkingarsetrið býður upp á tvo sali sem eru tilvaldir fyrir ýmsar uppákomur, Náttúrusalinn og Sögusalinn.
- Náttúrusalurinn getur hýst allt að 50 manna ráðstefnur, fundi eða minni veislur.
- Sögusalurinn tekur 56 manns í sæti á sjö aðskildum borðum og hentar vel fyrir minni veislur og viðburði auk þess að sinna hlutverki matsalar við ráðstefnuhald.

Gestir hafa aðgang að eldhúsi og leirtaui og geta komið með veitingar og borðað á staðnum. Hægt er að fá gasgrill til afnota gegn vægu gjaldi.
Leiðsögn um sýningarnar og starfsemina í húsinu er í boði fyrir hópa.
Sendið póst eða hringið í síma 423-7555 til að fá frekari upplýsingar.

