Ókeypis aðgangur verður að sýningum Þekkingarsetursins í tilefni Sandgerðisdaga.
Alla helgina verða lifandi sjávardýr til sýnis sem gestir geta skoðað í návígi og jafnvel fengið að halda á ef þeir þora!
kl 15:00 verður sjávardýrunum gefið að borða.
Á laugardeginum verður boðið upp á skoðunarferðir um húsnæði Þekkingarsetursins.
Þekkingarsetrið býður einnig upp á skemmtilegan ratleik um nágrenni Sandgerðisbæjar fyrir alla aldurshópa. Ratleikurinn tekur um klukkustund og glaðningur er í boði fyrir þá sem ná að ljúka honum.
Hjá okkur verður opið frá kl. 13:00-17:00 bæði laugardag og sunnudag. Við hvetjum alla til að kíkja við enda ókeypis aðgangur alla helgina.